Mjög þörf æfing því tilfinning nemenda fyrir selsíuskvarðanum er mjög misjöfn. Þau halda t.d. flest að kalt kranavatn sé mínus! Vinnublað nemenda 1 blaðsíða.
Verkefni þar sem nemendur skoða vef Orkuseturs Íslands. Verkefnið er frekar létt og nemendur 7. bekkjar hafa getað það hjálparlítið. Vinnublað nemenda 1 blaðsíða.
Orka og orkunotkun er þemaverkefni þar sem skipt er í hópa og unnið í tölvum. Það mætti þróa það miklu betur, en er þó miklu betra en ekkert. Skipulagsskjal 21 glæra.
Verkefni þar sem nemendur vinna með virkjanakort Framtíðarlandsins sem er gert á grunni Google maps. Frábært kort og verkefni sem gerir nemendum kleift að botna örlítið í umræðunni í þjóðfélaginu um þessar mundir. Vinnublað fyrir nemendur 1 blaðsíða.
Vinnuseðill með æfingu um varðveislu massa og rúmmáls sem er að finna í Auðvitað 3, en dálítið breytt. Afar einföld en krefst nákvæmni. Æskileg niðurstaða að massinn varðveitist (með einhverri mæliskekkju þó) en að rúmmálið varðveitist alls ekki.
Nafn
Skráarsnið
Efnisatriði skv. Aðalnámskrá grunnskóla: Náttúrufræði og umhverfismennt.
Stutt lýsing á efninu
lykilorð
Höfundur
Hugverkaréttur - hugverkasameign
hópverkefni
powerpoint Auðvitað 3
Að búa á jörðinni
vinnublað Auðvitað 3
rafmótor
Til baka í upphafssíðu gagnabanka